Tottenham mætir Liverpool á sunnudaginn og gæti farið niður í fallsæti um helgina.
Tottenham hefur tapað öllum fjórum leikjunum undir stjórn bráðabirgðastjórans Igor Tudor og talað um að hann verði mögulega látinn taka pokann sinn eftir að hafa verið ráðinn til að klára tímabilið.
„Þetta er erfið staða. Það er klárt," sagði Tudor á fréttamannafundi í dag en Tottenham fékk 5-2 skell gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.

„Þetta hefur verið mjög erfiður kafli og eins og með allt annað í lífinu getur þú valið hvernig þú sérð stöðuna. Þú getur grátið eða þú getur barist. Þú getur verið fórnarlamb eða þú getur sagst ætla að breyta einhverju og það eru skilaboðin sem ég vil koma með. Allir eru með skoðanir og flaskan er hálffull eða hálftóm."
„Ég trúi á því að leikmenn taki þess sem áskorun, sem tækifæri til að stíga upp með hugrekki til að breyta hlutum eftir þennan kafla."
Aldrei lent í þessari stöðu
Joao Palhinha og Cristian Romero fengu höfuðhögg þegar þeir lentu í samstuði í miðri viku og verða ekki með gegn Liverpool. Micky van de Ven og Yves Bissouma eru einnig frá. Conor Gallagher hefur verið veikur en verður þó líklega með á sunnudag.
„Það er erfitt að setja saman byrjunarlið. Þannig hefur þetta verið. Við byrjum að byggja eitthvað svo kemur rautt spjald eða þrjú eða fjögur meiðsli. Ég hef aldrei lent í þessari stöðu á mínum ferli," segir Tudor.
Vicario verður í marki gegn Liverpool
Tudor tjáði sig einnig um eitt stærsta fréttamál vikunnar en markvörðurinn Antonin Kinsky, sem er 22 ára, var tekinn af velli eftir aðeins sautján mínútna leik gegn Atletico Madrid, þegar staðan var 3-0.
„Hann mætti aftur á æfingu daginn eftir og var mjög góður og jákvæður. Hann er með styrk og gæði til að takast á við þetta og ég tel að hann muni eiga mjög góðan feril," segir Tudor.
Hann staðfesti á fundinum að Guglielmo Vicario verði í markinu gegn Liverpool á sunnudaginn.
Athugasemdir