Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   sun 13. september 2020 19:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Menn mega segja það sem þeir vilja en ég æfði eins og skepna úti í Hollandi"
Hallgrímur Mar.
Hallgrímur Mar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég veit ekki hvernig mér á að líða, það er svo langt síðan maður vann fótboltaleik það er bara geggjað að sigurinn kom loksins eftir langa bið," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, annar markaskorara KA, eftir sigur á Fylki í dag.

Lestu um leikinn: KA 2 -  0 Fylkir

Mikill léttir
Sigurinn í dag var annar sigur KA í sumar, báðir hafa komið á heimavelli. Grímsi skoraði fyrra mark leiksins strax á 2. mínútu leiksins og var það mark fyrsta deildarmarkið hans í sumar. Hvernig líður honum með það?

„Það er mikill léttir, ég er búinn að bíða eftir þessu lengi. Liðið er allt að smella saman og sóknarleikurinn vonandi að komast í gang núna og vonandi fylgja bara fleiri [mörk] í kjölfarið."

Menn mega segja það sem þeir vilja
Það var mikið rætt og ritað fyrir mót og áfram þegar liðið hefur á mótið að Grímsi hefði mætt of þungur og ekki í leikformi þegar hann kom til landsins eftir dvöl í Hollandi í vetur. Hvað finnst honum um þá umræðu?

„Menn mega segja það sem þeir vilja en ég æfði eins og skepna úti í Hollandi. Ég veit ekki hvort ég hafi lyft of mikið og verið of þungur þess vegna. Um leið og ég kom heim þá kom covid og þá fór eitthvað smá í fokk. Ég var í fínu formi."

Sjá einnig:
„Hallgrímur virkar þungur og er ekki jafn afgerandi"

Hallgrímur sagði þá að markvörðurinn, Kristijan Jajalo, hafi verið frábær í sumar og hafi verið frábær í dag. Hann var einnig spurður út í framhaldið og spilamennsku liðsins í heild sinni. Svörin við þeim spurningum má heyra í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner