Kieran Trippier varafyrirliði Newcastle United kvartaði undan dómgæslunni eftir endurkomusigur gegn Aston Villa í enska bikarnum í dag. Hann bar fyrirliðabandið í fjarveru Bruno Guimaraes.
Aston Villa tók forystuna með því sem virtist vera rangstöðumark og svo átti Lucas Digne, vinstri bakvörður liðsins, að fá dæmda á sig vítaspyrnu og rautt spjald fyrir að verja með hendi innan vítateigs.
Ekkert VAR er við notkun í 32-liða úrslitum bikarsins og var Trippier stoltur af hugarfari liðsfélaga sinna eftir sigurinn.
„Við höfum verið gagnrýndir mikið að undanförnu en eftir tapið gegn Brentford héldum við fund og núna erum við búnir að vinna tvo útileiki í röð," sagði Trippier. Newcastle tapaði heimaleik gegn Brentford um síðustu helgi en hefur síðan þá unnið tvo útileiki í röð.
„Í dag var ekkert VAR í leiknum en atvikið þegar hann fær boltina í hendina innan vítateigs var augljóst. Ég er alveg viss um að þetta átti að vera víti, en svona er fótboltinn. Þetta snýst stundum um að bregðast við vonbrigðum og við gerðum það stórkostlega í dag.
„Villa er gott lið og þeir voru hættulegir þrátt fyrir að vera manni færri. Þriðja markið var mjög mikilvægt til að klára leikinn."
Trippier hrósaði Eddie Howe þjálfara, sem hefur legið undir gagnrýni, í hástert eftir lokaflautið. „Ég hef þekkt hann í meira en helming ævi minnar og við unnum þennan leik fyrir hann. Allir í liðinu spiluðu þennan leik fyrir hann. Við stöndum þétt við bakið á honum."
Ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali reyndist hetja Newcastle þegar hann skoraði tvennu í síðari hálfleik.
„Ég byrja alltaf að skora seint á hverju tímabili en ég er mjög ánægður með að þrotlaus vinna sé að skila sér. Við eigum þennan sigur skilið og stuðningsmennirnir líka," sagði Tonali.
14.02.2026 21:01
Howe kvartaði undan skrýtinni dómgæslu
Athugasemdir



