Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Segir Tudor að byggja liðið í kringum tvo leikmenn - „Getur ekki tekið bandið af Romero“
Redknapp segir Archie Gray framtíðar fyrirliða Tottenham
Redknapp segir Archie Gray framtíðar fyrirliða Tottenham
Mynd: EPA
Lucas Bergvall er annar leikmaður sem Redknapp er hrifinn af
Lucas Bergvall er annar leikmaður sem Redknapp er hrifinn af
Mynd: EPA
Króatíski þjálfarinn Igor Tudor var ráðinn nýr stjóri Tottenham út þetta tímabil eftir að Thomas Frank var látinn taka poka sinn, en fyrrum stjóri félagsins kallar eftir því að liðið verði byggt í kringum tvo leikmenn.

Harry Redknapp, sem stýrði Tottenham frá 2008 til 2012, kom liðinu á þeim tíma í Meistaradeildina í fyrsta sinn í langan tíma.

Hann segir að Tudor þurfi að horfa sérstaklega á tvo leikmenn til þess að byggja liðið í kringum. Það eru þeir Archie Gray og Lucas Bergvall, en hann sér Gray fyrir sér sem framtíðar fyrirliða Tottenham.

Redknapp vill þó alls ekki að Cristian Romero verði sviptur fyrirliðabandinu enda gæti það haft slæm áhrif á hópinn.

„Það eru nokkrir leikmenn sem Tudor þarf að eiga við og sérstaklega fyrirliðann Cristian Romero. Það er ekki hægt að taka bandið af honum þó það hljómi eins og auðveld lausn. Ef þú gerir það þá er hann horfinn af braut.“

„Í augnablikinu þarftu hann með þér í liði, en það þarf samt að taka hreinskilið samtal við hann um agaleysið.“

„Romero og restin af hópnum geta fylgt frábæru fordæmi Archie Gray. Hann var besti leikmaður Tottenham á síðasta ári og skilar alltaf sínu sama hvar hann spilar á vellinum.“

„Gray er framtíðarfyrirliði Tottenham og allir ættu að leita til hans. Hann leggur sig allan fram, sýnir skuldbindingu og þessa þrá hvort sem það er í hægri bakverði, miðverði eða á miðjunni.“

„Strákarnir hjá Tottenham, bæði Gray og Lucas Bergvall, hafa komið sér í leiðtogahlutverk í allt of langan tíma og það er tími til kominn að reyndari menn í hópnum fylgi þeirra fordæmi,“
sagði Redknapp.

Tottenham er í 16. sæti deildarinnar með aðeins 29 stig og ekki unnið deildarleik síðan í lok desember.
Athugasemdir
banner
banner
banner