Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 15. ágúst 2021 13:13
Brynjar Ingi Erluson
„Maður býst við fjórum stoðsendingum frá 100 milljón punda leikmanni"
Graeme Souness er ekki mikill Pogba-maður
Graeme Souness er ekki mikill Pogba-maður
Mynd: Getty Images
Graeme Souness, sparkspekingur á BT Sports, virðist enn vera með horn í síðu Paul Pogba hjá Manchester United en hann vildi ekki hrósa honum sérstaklega eftir 5-1 sigurinn á Leeds United í gær.

Pogba lagði upp fjögur mörk í leiknum en hann lagði aðeins upp þrjú mörk yfir heilt tímabil í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Souness, sem hefur gagnrýnt Pogba mikið síðustu ár, vildi ekki tala sérstaklega um frammistöðu hans í gær þegar Micah Richards innti eftir viðbrögðum.

„Greenwood var stjarnan í þessari sýningu fannst mér," sagði Souness áður en Richards benti honum á að Pogba lagði upp fjögur mörk í leiknum.

„Þetta er eitthvað sem þú býst við að sjá hjá leikmanni sem kostaði 100 milljón pund," svaraði Souness.

Pogba var keyptur til United frá Juventus árið 2017 fyrir 89 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner