Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fös 16. janúar 2026 23:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Durosinmi bjargaði stigi fyrir Pisa
Mynd: EPA
Pisa 1 - 1 Atalanta
0-1 Nikola Krstovic ('83 )
1-1 Rafiu Durosinmi ('87 )

Pisa, sem er í harðri fallbaráttu, fékkk Atalanta í heimsókn en Atalanta er í baráttu um Evrópusæti.

Pisa var hættulegri aðilinn í fyrri hálfleik og fékk góð tækifæri til að komast yfir en staðan var markalaus eftir 45 mínútur.

Atalanta komst betur inn í leikinn i seinni hálfleik og Nikola Krstovic kom liðinu yfir þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Pisa gafst hins vegar ekki upp og Rafiu Durosinmi bjargaði stigi fyrir liðið.

Pisa er í 19. sæti með 14 stig, þremur stigum frá öruggu sæti en Atalanta er í 7. sæti með 32 stig.

Ítalski boltinn er á Livey en hægt er að tryggja sér áskrift með því að smella á tengilinn


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner