Marokkó 2 - 1 Ísland
U19 landslið karla tapaði í dag 1-2 gegn Marokkó í síðasta leik sínum á æfingamóti í Portúgal. Spilað var á æfingasvæði portúgalska fótboltasambandsins.
Helgi Hafsteinn Jóhannsson skoraði mark Íslands í leiknum og var það glæsilegt. Hann sólaði leikmenn Marokkó vinstra megin í vítateig þeirra og þrumaði svo boltanum með hægri fæti í fjærhornið. Helgi jafnaði leikinn í 1-1, hann er 17 ára Grindvíkingur sem spilar með Álaborg í Danmörku.
Ísland tapaði öllum þremur leikjum sínum á mótinu, en það mætti einnig Portúgal (0-4 tap) og Bandaríkjunum (1-2 tap).
Sjáðu markið
Hér má sjá glæsilegt mark Helga Hafsteins Jóhannssonar (2008) með U19 landsliðinu í Portúgal gegn Marokkó í dag #fotboltinet pic.twitter.com/PBbMSKClBd
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) March 31, 2026
Athugasemdir


