Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Landsliðsþjálfarinn eftir stóran skell Breiðabliks: Þurfum aðeins að gefa í
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, opinberaði landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM í dag. Framundan eru leikir gegn heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands.

Hann var spurður hvort hann hefði áhyggjur af gæðum íslensku deildarinnar en Breiðablik fékk skell á dögunum þegar þær töpuðu með sjö mörkum gegn sænska liðinu Häcken auk þess að nokkuð margir leikmenn hafa farið erlendis. Flestar hafa farið frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks en einnig hefur FH misst öfluga leikmenn út.

„Já, þetta er alveg áhyggjuefni varðandi deildina að það eru margir leikmenn að fara út. Deildin hefur kannski veikst að einhverju leyti út af því. Við erum komin með sennilega í kringum 30 leikmenn sem spila erlendis í dag, auðvitað hefur þetta áhrif á gæði deildarinnar.“

„Það er náttúrulega komin ein önnur deild í Bandaríkjunum þannig að það fjölgar liðum þar. Það er að fjölga liðum í mörgum deildarkeppnum, sem þýðir líka að framboð og möguleiki á því að fá erlenda leikmenn í ákveðnum gæðum minnkar, þeir kannski leita í annað. Þetta hefur allt áhrif á t.d. úr hvaða körfu við erum að sækja leikmenn erlendis frá. Þannig að þetta hefur verið að veikja deildina.“

Að lokum nefndi hann nauðsyn þess að bregðast við:

„Auðvitað voru þetta ekki góð úrslit og ekki gaman að horfa á leikinn hjá Breiðabliki á miðvikudaginn síðasta. En þetta segir kannski að hluta til það að við þurfum aðeins að gefa í. Við þurfum að leggja aðeins sterkari áherslu á það hvernig við viljum sjá kvennafótboltann í framtíðinni.“
Athugasemdir
banner