Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 15:31
Elvar Geir Magnússon
Túfa kaupir Loga Hrafn til Svíþjóðar frá Króatíu
Logi Hrafn Róbertsson.
Logi Hrafn Róbertsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Hrafn Róbertsson er að ganga í raðir IFK Värnamo sem féll úr efstu deild Svíþjóðar í fyrra.

Frá þessu greina króatískir fjölmiðlar en Logi, sem er 21 árs, gekk í raðir NK Istra frá FH á síðasta ári.

Srdjan Tufegdzic, Túfa, tók við þjálfun Värnamo í vetur og sækir nú Loga til félagsins. Sagt er að kaupverðið sé í kringum 29 milljónir íslenskra króna.

Logi hefur ekki spilað byrjunarliðsleik fyrir NK Istra í króatísku deildinni síðan í lok nóvember og aðeins komið við sögu í fimmtán mínútur samtals í síðustu sjö leikjum. Hann hefur verið utan hóps síðustu þrjá leiki.

Danijel Djuric spilar einnig fyrir Istra og hefur líka verið úti í kuldanum, hann hefur verið utan hóps í síðustu tveimur leikjum.



Athugasemdir
banner