Bukayo Saka spilaði virkilega vel sem miðjumaður með Arsenal í 4-0 sigrinum gegn Wigan í FA-bikarnum í gær.
Saka er vanur því að spila á hægri kantinum en eftir að Riccardo Calafiori meiddist í upphitun ákvað Mikel Arteta, stjóri Arsenal, að vera með tilraunastarfsemi.
Hann hætti við að láta Myles Lewis-Skelly spila á miðsvæðinu, lét hann í varnarlínuna og Saka kom inn í liðið sem fremsti miðjumaður.

Allt gekk upp hjá Arsenal sem var komið í 4-0 áður en hálftími var liðinn af leiknum. Saka gæti spilað þessa stöðu oftar.
„Þetta var möguleiki sem ég vildi prófa og við getum gert það aftur í framtíðinni. Það eru svo margir leikir, margar keppnir og margar sviðsmyndir sem eru framundan," segir Arteta.
„Saka er meira miðsvæðis svona, hann er nær markinu. Hann getur líka skipt tímabundið um stöðu við kantmann og er óútreiknanlegri fyrir andstæðinginn."
Athugasemdir