Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   lau 17. janúar 2026 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Benoný hetjan aðra helgina í röð
Benoný Breki var hetjan aðra helgina í röð
Benoný Breki var hetjan aðra helgina í röð
Mynd: Stockport County
Benoný Breki Andrésson er kominn í stuð með Stockport County en hann skoraði sigurmark liðsins aðra helgina í röð er það vann Rotherham 3-2 í C-deildinni á Englandi.

Hann skoraði seint sigurmark í uppbótartíma gegn Huddersfield um síðustu helgi.

Þá lagði hann upp jöfnunarmarkið í 2-1 sigri á Harrogate í EFL-bikarnum í vikunni. Hann hélt því uppteknum hætti þegar Stockport mætti Rotherham í dag.

Framherjinn kom inn af bekknum á 61. mínútu er staðan var 2-2 og fimmtán mínútum síðar gerði hann sigurmarkið.

Stockport er í 4. sæti með 45 stig, fjórum stigum frá Lincoln sem er í öðru sæti, en tvö efstu liðin fara beint upp í B-deildina í vor.


Stöðutaflan England England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Lincoln City 35 22 8 5 65 31 +34 74
2 Cardiff City 35 22 6 7 68 38 +30 72
3 Bolton 36 17 13 6 53 36 +17 64
4 Bradford 35 18 7 10 45 39 +6 61
5 Stockport 34 16 8 10 47 43 +4 56
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Huddersfield 36 16 7 13 56 46 +10 55
7 Reading 35 14 12 9 53 46 +7 54
8 Stevenage 34 15 9 10 38 35 +3 54
9 Wycombe 36 14 11 11 52 39 +13 53
10 Plymouth 35 15 4 16 51 51 0 49
11 Luton 35 13 8 14 45 44 +1 47
12 Barnsley 33 13 8 12 55 55 0 47
13 Peterboro 35 14 4 17 50 49 +1 46
14 Wimbledon 34 13 7 14 42 48 -6 46
15 Exeter 35 11 9 15 40 42 -2 42
16 Mansfield Town 33 10 11 12 39 37 +2 41
17 Burton 36 10 10 16 39 51 -12 40
18 Doncaster Rovers 34 11 6 17 37 57 -20 39
19 Wigan 34 9 11 14 36 47 -11 38
20 Blackpool 35 10 8 17 41 55 -14 38
21 Leyton Orient 34 10 6 18 45 58 -13 36
22 Rotherham 35 9 8 18 33 48 -15 35
23 Northampton 36 9 8 19 31 48 -17 35
24 Port Vale 32 6 9 17 26 44 -18 27
Athugasemdir
banner
banner