Victor Osimhen, leikmaður tyrkneska liðsins Galatasaray, er enn reiður út í Napoli eftir slæman viðskilnað við félagið.
Osimhen var markakóngur þegar Napoli varð Ítalíumeistari 2023 en samband hans og félagsins súrnaði hratt tímabilið eftir. Í september 2023 gerði Napoli grín að Osimhen á TikTok aðgangi sínum eftir að hann misnotaði vítaspyrnu.
Það var gert með tveimur myndböndum, en í öðru þeirra er gert grín að vítaspyrnuklúðri hans og var þá hitt fremur skrítnara þar sem Osimhen og kókoshnetur komu fyrir.
Osimhen var markakóngur þegar Napoli varð Ítalíumeistari 2023 en samband hans og félagsins súrnaði hratt tímabilið eftir. Í september 2023 gerði Napoli grín að Osimhen á TikTok aðgangi sínum eftir að hann misnotaði vítaspyrnu.
Það var gert með tveimur myndböndum, en í öðru þeirra er gert grín að vítaspyrnuklúðri hans og var þá hitt fremur skrítnara þar sem Osimhen og kókoshnetur komu fyrir.
Eitthvað brotnaði eftir TikTok myndbandið
„Stuðningsmennirnir fengu aldrei almennilega útskýringu. Sumir þeirra komu heim til mín og báðu um útskýringu. Ég bað þá um að setja sig í mín spor. Eftir að Napoli setti þetta TikTok myndband þá brotnaði eitthvað," segir Osimhen.
„Allir geta lent í því að klúðra víti og vera strítt á því. Napoli gerði þetta bara við mig og með ákveðnum hætti. Ég varð fyrir kynþáttaníð og vildi fara. Ég eyddi myndum af mér í Napoli treyjunni á Instagram og félagið notaði það til að snúa stuðningsmönnum gegn mér. Það var erfitt, ég lít á að dóttir mín sé meira frá Napoli en Nígeríu."
„Enginn hjá Napoli baðst opinberlega afsökunar á því sem gerðist. Eftir þetta myndband hringdi Edoardo De Laurentiis (varaforseti Napoli) nokkrum sinnum í mig. Meira var það ekki. Það fóru af stað kjaftasögur um að ég væri að mæta of seint á æfingar og að rífast við samherja. Það var allt saman lygi."
„Mér finnst þetta leiðinlegt gagnvart stuðningsmönnum, ég dái þá. Þeir styðja liðið í gegnum súrt og sætt. Napoli er framar öllu öðru hjá þeim."
Ég er ekki strengjabrúða
Osimhen skrifaði undir nýjan samning við Napoli í desember 2023 en vissi að hann yrði ekki lengi hjá félaginu.
„Við gerðum heiðursmannasamkomulag um að ég gæti farið sumarið eftir en það var ekki staðið fullkomlega við það af þeirra hálfu. Þeir komu fram við mig eins og hund; farðu þangað og gerðu þetta. Ég gat ekki sætt mig við svona framkomu. Ég er ekki strengjabrúða."
Antonio Conte tók við Napoli 2024 en Osimhen var þegar búinn að ákveða að yfirgefa félagið.
„Einhverjir sögðu að hann hafi ekki viljað hafa mig. Eruð þið að grínast? Á þessum tíma, hvaða stjóri hefði ekki viljað halda mér? Conte kallaði mig inn á skrifstofuna og sagðist meðvitaður um stöðuna en þrátt fyrir allt vildi hann halda mér," segir Osimhen.
„Ég sagði við hann að ég hefði viljað starfa með honum en ég var búinn að taka ákvörðun. Ég vildi ekki halda áfram að starfa á stað þar sem mér leið ekki vel. Ég fann félag og borg sem ég elska. Kannski var það heppni. Um leið og þú lendir í Istanbúl þá skilur þú alla þá sem hafa orðið ástfangnir af félaginu og fólkinu. Ég hafði upplifað annað eins."
Juventus reyndi að fá hann
Osimhen og félagar í Galatasaray leika fyrri leik sinn gegn Juventus í umspili Meistaradeildarinnar í Istanbúl í dag klukkan 17:45. Luciano Spalletti, sem stýrði Napoli til Ítalíumeistaratitilsins 2023, er nú stjóri Juve.
Osimhen staðfestir að Juventus hafi reynt að kaupa sig 2024, áður en hann fór til Galatasaray.
„Ég ræddi við nokkra aðila frá Juventus. Þeir vildu fá mig en ég vissi að forsetinn myndi ekki leyfa mér að fara þangað. Þegar Juventus hringir þá hlustar maður," segir Osimhen.
TikTok myndöndin sem Napoli birti á sínum tíma:
Napoli are being criticised, after their TikTok account posted a video mocking Victor Osimhen for missing a penalty.
— Africa Facts Zone (@AfricaFactsZone) September 27, 2023
Napoli's TikTok account also posted a video mocking him,and tagging a coconut 3 days before that.
Osimhen has deleted Napoli related pictures from his Instagram. pic.twitter.com/iVVaQfXiHb
Athugasemdir

