Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 18. júlí 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Lewandowski: Ætla að hjálpa Barcelona aftur á toppinn
Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski.
Mynd: Getty Images
„Loksins er ég hérna," sagði Robert Lewandowski eftir að samningur hans við Barcelona var staðfestur.

„Ég er feikilega ánægður með að vera kominn til Barcelona. Síðustu dagar voru mjög langir en á endanum gekk allt upp. Nú get ég einbeitt mér að næsta kafla í lífi mínu, nýrri áskorun. Ég er áfram aðili sem vill vinna, ekki bara leiki heldur titla."

„Ég vonast til þess að við komum okkur á sigurbraut strax í upphafi nýs tímabils og haldi þannig áfram allt til loka. Ég vildi alltaf spila í La Liga og spila fyrir stórt félag þar. Nú gafst það tækifæri."

„Hjá Barcelona snýst þetta um að koma sér aftur á beinu brautina. Þess vegna er ég hér, til að hjálpa Barcelona að komast aftur á toppinn og vinna eins marga titla og mögulegt er."

„Ég hef rætt við Xavi og sá strax að hans hugmyndafræði og hugarfar er gott. Það auðveldaði þá ákvörðun að fara til Barcelona. Ég vil vinna og Xavi veit nákvæmlega hvernig á að stýra Barcelona. Hann var magnaður leikmaður og nú er hann mjög góður þjálfari. Hann á bjarta framtíð og ég vil taka þátt í þessu."

„Hjá mér eru mörk það mikilvægasta og við vitum að Barcelona er á leið í rétta átt og getur afrekað mikið á komandi tímabili. Ég er viss um að það verði raunin," segir Lewandowski.


Athugasemdir
banner
banner