Heimild: KDN
Þór 3 - 0 Þór2
1-0 Hektor Bergmann Garðarsson
2-0 Christian Greko Jakobsen
3-0 Peter Ingi Helgason
1-0 Hektor Bergmann Garðarsson
2-0 Christian Greko Jakobsen
3-0 Peter Ingi Helgason
Meistaraflokkur Þórs tók á móti 2. flokknum í undanúrslitum Kjarnafæðimótsins. Þrír leikmenn meistaraflokksins í þessum leik eru enn á 2. flokks aldri.
Staðan í hálfleik var markalaust, 2. flokkurinn lék vel og markvörðurinn Lucas Vieira Thomas var öflugur í markinu.
Skagamaðurinn Hektor Bergmann Garðarsson hefur verið á reynslu hjá Þór og hann braut ísinn á 50. mínútu. Húsvíkingurinn Elvar Baldvinsson spilaði einnig með Þór í leiknum.
Í kjölfarið skoruðu svo þeir Christian Greko Jakobsen og Peter Ingi Helgason og innsiguluðu sigur meistaraflokks. Húsvíkingur
Með sigrinum tryggði Þór sér sæti í úrslitaleik mótsins og mætir liðið þar grönnunum í KA. Sá leikur verður spilaður eftir rúma tvo mánuði.
Athugasemdir



