Albert Brynjar Ingason greindi frá því í hlaðvarpsþættinum Gula Spjaldið að Íslands- og bikarmeistarar Víkings hefðu áhuga á því að fá markakóng tímabilsins, Emil Atlason, í sínar raðir frá Stjörnunni.
Emil á rúmt ár eftir af samningi sínum við Stjörnuna. Hann skoraði 17 mörk í 21 leik og endaði með fimm mörkum meira en næstu menn á lista.
Fótbolti.net heyrði í Þorvaldi Örlygssyni sem er rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar og spurði út í mögulegan áhuga Víkings á Emil. Er búið að leggja fram tilboð?
„Nei, það er ekki komið neitt tilboð í Emil," sagði Toddi.
Eru viðræður við hann um nýjan samning?
„Það er verið að skoða framhaldið með Emil og hans mönnum. Það verður bara skoðað á næstunni."
Fjallað var um það í Þungavigtinni að það væri eitthvað riftunarverð í samningi Emils. Toddi vildi ekki tjá sig um það.
„Það eru viðræður um að hann verði hér áfram, vonumst til að hann verði næstu árin í Stjörnunni," sagði Toddi.




