Á morgun fer Lengjudeild kvenna af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara og fyrirliða í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Að lokum er komið að því að fara yfir liðin sem er spáð þremur efstu sætunum.
Að lokum er komið að því að fara yfir liðin sem er spáð þremur efstu sætunum.
3. KR (127 stig)
Lokastaða í fyrra: 5. sæti í Lengjudeildinni
KR er spáð 3. sæti og fer inn í tímabilið með auknar væntingar eftir að hafa unnið sig upp úr erfiðum kafla. Liðið féll úr Bestu deildinni 2022 eftir krefjandi tímabil, bæði innan vallar og utan, og tók svo annan skell árið eftir þegar liðið átti erfitt uppdráttar í Lengjudeildinni. Það hefur tekið tíma að koma hlutunum aftur á réttan kjöl, en síðasta sumar gaf til kynna að uppbyggingin sé farin að skila árangri. Það er rík hefð fyrir kvennabolta í Vesturbænum og KR hefur áður sýnt að það getur verið meðal sterkustu liða landsins þegar allt smellur. Spurningin fyrir komandi sumar er hvort KR nái að byggja ofan á þann grunn sem lagður hefur verið og taka næsta skref undir handleiðslu John Andrews sem hefur reynslu af því að komast upp úr þessari deild og byggja upp sterka liðsheild.
Lykilmenn: Makayla Soll og Katla Guðmundsdóttir
Makayla Soll er á leið inn í sitt þriðja tímabil með KR en hún hefur smollið afar vel inn í hlutina í Vesturbænum. Þessi öflugi miðjumaður var valin í lið ársins í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hún átti frábært tímabil. Annar leikmaður sem átti sterkt tímabil í fyrra er Katla Guðmundsdóttir sem skoraði ellefu mörk í 18 deildarleikjum í Lengjudeildinni.
Gaman að fylgjast með: Kara Guðmundsdóttir
Yngri systir Kötlu, Kara, er mjög spennandi leikmaður. Hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki KR í fyrra og spilaði þá 14 leiki og skoraði fjögur mörk. Þær systur hafa ekki langt að sækja fótboltagenin þar sem foreldrar þeirra eru Guðmundur Benediktsson og Kristbjörg Ingadóttir.
Þjálfarinn segir - John Andrews
„Við erum mjög stolt af því að vera spáð 3. sæti með lið sem er að mestu leyti byggt á heimamönnum/íslenskum leikmönnum. Í ljósi þess hversu mikið af erlendum leikmönnum hefur komið inn í Lengjudeildina fyrir þetta tímabil erum við þakklát fyrir þessa háu spá, og slíkur árangur væri frábær staðfesting á því sem við erum að reyna að byggja upp hér hjá KR."
2. Grótta (128 stig)
Lokastaða í fyrra: 4. sæti í Lengjudeildinni
Gróttu er spáð 2. sæti eftir að hafa verið nálægt því að komast upp á síðasta tímabili. Liðið var að lokum aðeins einu stigi frá Grindavík/Njarðvík sem fór upp um deild. Undanfarin ár hefur Grótta verið eitt af þeim liðum sem hefur tekið mestum framförum. Í hópnum er nokkuð góð blanda af yngri og reynslumeiri leikmönnum sem hafa vaxið með liðinu. Þetta er lið sem hefur verið í mótun síðustu ár og nú er spurning hvort liðið spili í Bestu deildinni sumarið 2027. Grótta hefur verið ansi nálægt því að fara upp síðustu tvö árin og nú fara Seltirningar inn í tímabilið með allt aðrar væntingar en áður. Þær eru lið sem aðrir horfa til sem alvöru keppinaut í toppbaráttunni og sést það á þessari spá þar sem þjálfarar og fyrirliðar spá því að þær muni taka skrefið í sumar og fara upp.
Lykilmenn: Maya Camille Neal og Lovísa Davíðsdóttir Scheving
Maya Neal er öflugur varnarmaður sem var á bekknum í liði ársins í fyrra þegar hún spilaði með nágrönnunum í KR. Hún átti gott sumar í Vesturbænum og það er vonandi fyrir Gróttu að hún haldi áfram á sömu braut. Lovísa er þá uppalin í Gróttu og hefur leikið þar allan sinn feril í meistaraflokki. Hún hefur verið að taka að sér stærra og stærra hlutverk í Gróttuliðinu síðustu árin.
Gaman að fylgjast með: Nicole Douglas
Enski sóknarmaðurinn Nicole Douglas gekk til liðs við Gróttu í vetur. Nicole verður 26 ára í sumar og á að baki áhugaverðan feril. Hún er alin upp hjá stórliði Chelsea og kom við sögu hjá U17 og U19 ára landsliðum Englands. Hún fór svo til Bandaríkjanna í háskóla og var valin í nýliðavali NWSL. Hún spilaði svo með London City Lionesses í Englandi og DC Power í Bandaríkjunum áður en hún mætti í Gróttu. Klárlega leikmaður sem vert er að fylgjast með.
Þjálfarinn segir - Dominic Ankers
„Það er ánægjuleg viðurkenning að vera spáð sæti sem gefur möguleika á að fara upp í fyrsta sinn, enda sýnir það það álit sem önnur lið í deildinni hafa á okkur og endurspeglar vel þá vinnu sem hefur verið lögð í uppbygginguna hjá Gróttu undanfarin ár."
„Auðvitað hefur hvert tímabil sína eigin sögu og liðin taka breytingum milli ára, þar sem leikmenn takast á við nýjar áskoranir, hvort sem er innan vallar eða utan."
„Fókusinn hjá okkur núna er því á að tryggja að útgáfan af liðinu 2026 verði betri en þær sem á undan hafa komið. Ef okkur tekst það bendir einföld stærðfræði til þess að við verðum í góðri stöðu til að berjast aftur um sæti í efstu deild."
1. HK (151 stig)
Lokastaða í fyrra: 3. sæti í Lengjudeildinni
HK er spáð efsta sæti deildarinnar eftir að hafa verið hársbreidd frá því að komast upp á síðasta tímabili. Liðið hefur byggt sig jafnt og þétt upp síðustu ár og verið stöðugt í toppbaráttunni, en alltaf vantað herslumuninn til að klára verkefnið. Aðdragandinn að þessu tímabili hefur þó ekki verið áfallalaus. Þjálfaraskipti urðu skömmu fyrir mót eftir að Pétur Rögnvaldsson, þá þjálfari liðsins, braut siðareglur í æfingaferð og lét af störfum. Andri Hjörvar Albertsson tók við en það er spurning hvernig slíkt hefur áhrif á liðið stuttu fyrir mót. Það er ljóst að gæðin eru til staðar. HK hefur safnað dýrmætri reynslu síðustu árin og veit hvað þarf til að vera með alla leið í toppbaráttunni, en núna þarf að finna svarið við spurningunni hvernig sé hægt að taka lokaskrefið.
Lykilmenn: Isabella Eva Aradóttir og Kaylie Erin Bierman
Isabella Eva hefur verið lykilmaður hjá HK í fjöldamörg ár og er með fyrirliðabandið. Isabella Eva er uppalinn HK-ingur og er með mikið HK-hjarta. Hún var á bekknum í liði ársins í fyrra, eins og markvörðurinn Kaylie Erin Bierman sem kom í Kórinn fyrir síðasta tímabil. Kaylie er án efa einn besti markvörður deildarinnar, ef ekki bara sá besti.
Gaman að fylgjast með: Karlotta Björk Andradóttir
Leikmaður sem kom í HK frá Stjörnunni síðasta sumar og spilaði nokkuð vel með liðinu á síðasta tímabili. Hún hefur verið að raða inn mörkum á undirbúningstímabilinu í vetur og er leikmaður sem gæti sprungið út í sumar.
Þjálfarinn segir - Andri Hjörvar Albertsson
„Að vera spáð fyrsta sætinu er ánægjulegt og við i HK tökum því þannig að það er mikil trú á getu og gæðum HK leikmanna."
„Stelpurnar hafa lagt hart að sér undanfarið, æft vel og það er góður andi í hópnum."
„Við höfum stór markmið fyrir sumarið, viljum ná árangri og bætingu frá hverjum leik til hins næsta."
„Þetta sumar hefur allt til að bjóða uppá skemmtun, spennu og svo auðvitað sitthvað óvænt. Mörg lið með sem vilja gera sig gildandi í baráttunni um efstu sætin, lið með sterkan hóp og öflugt þjálfarateymi."
„Að lokum fagna ég aukinni umfjöllun um deildina og hvet um leið alla stuðningsmenn til að mæta á leikina og styðja stelpurnar - það gerir allt svo miklu skemmtilegra."
Svona er fyrsta umferð Lengjudeildarinnar:
laugardagur 2. maí
Lengjudeild kvenna
14:00 HK-ÍA (Kórinn)
14:00 Grótta-Haukar (Vivaldivöllurinn)
17:00 Tindastóll-Keflavík (Sauðárkróksvöllur)
sunnudagur 3. maí
14:00 FHL-Völsungur (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 KR-Selfoss (Meistaravellir)



