Portúgalski þjálfarinn Jose Mourinho er ekki númer eitt á óskalista Real Madrid fyrir sumarið. BBC fór yfir óskalistann hjá Madrídingum og af hverju Mourinho gæti verið góður kostur.
Alvaro Arbeloa verður ekki áfram með Real Madrid eftir þetta tímabil enda var hann aðeins ráðinn tímabundið.
Florentino Perez, forseti spænska félagsins, hefur verið að virða nokkra kosti fyrir sér og gæti Mourinho verið jókerinn. Hann þarf mann inn sem getur ráðið við stærstu stjörnur heims. Það spilar töluvert stærri rullu en taktík.
BBC segir Perez hafa komið því í kosmósinn að Mourinho gæti tekið við Real Madrid í sumar til að athuga viðbrögð og hafa stuðningsmenn tekið ágætlega í þær fréttir.
Perez er hins vegar að skoða fleiri kosti og er Mourinho aðeins varakostur í augnablikinu.
Jürgen Klopp, Didier Deschamps og Max Allegri eru efstir á listanum, en ef þeir hafna er líklegasta niðurstaðan að Mourinho muni taka við liðinu í annað sinn á ferlinum.
Mourinho er samningsbundinn Benfica út næstu leiktíð, en samkvæmt erlendum miðlum er ekkert mál fyrir hann að rifta samningnum þar og er hann sagður spenntur fyrir hugmyndinni að snúa aftur á Santiago Bernabeu.




