Selfyssingar hafa greint frá hræðilegum tíðindum en þrír leikmenn liðsins urðu fyrir alvarlegum meiðslum sem mun halda þeim frá keppni næstu mánuði.
Elvar Orri Sigurbjörnsson er með slitið krossband eftir að hafa meiðst í leik með liðinu gegn Augnabliki í Lengjubikarnum. Hann mun gangast undir aðgerð síðar í þessum mánuði.
Alexander Clive fótbrotnaði í síðasta leik sínum í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hann gekkst undir aðgerð ytra sem þýðir að hann verður frá út tímabilið eins og Elvar.
Arnór Elís Kjartansson, markvörður Selfyssinga, meiddist í æfingaferðinni á Tenerife. Hann er á leið í myndatöku, en grunur er um rifu í liðþófa sem myndi halda honum frá keppni í sex vikur.
Selfyssingar brugðust hratt við meiðslum Arnórs, en Benjamín Jónsson er kominn til félagsins frá Þrótti R.
Selfoss mætir KFA í 1. umferð 2. deildar karla á morgun en leikurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á JÁVERK-vellinum á Selfossi.





