Logi Hrafn Róbertsson þreytti frumraun sína með Värnamo er liðið gerði 2-2 jafntefli við Örgryte í 1. umferð sænsku bikarkeppninnar í dag.
Srdjan Tufegdzic fékk Loga til félagsins frá Istra í Króatíu og gaf honum frumraunina í dag.
Logi kom inn af bekknum þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
22.02.2026 12:46
Fékk hæstu meðmæli frá Heimi Guðjóns
Värnamo mætir næst Kalmar eftir rúma viku og spilar síðan við Svíþjóðarmeistara Mjällby í lokaumferð riðilsins.
Stefán Teitur Þórðarson kom inn af bekknum hjá Hannover á lokamínútunum í markalausu jafntefli gegn Dynamo Dresden í B-deildinni í Þýskalandi. Hannover er í 5. sæti deildarinnar með 42 stig.
Alfons Sampsted byrjaði hjá Go Ahead Eagles í 4-0 stórsigri á Heracles í hollensku úrvalsdeildinni.
Blikinn kom til félagsins frá Birmingham City í janúarglugganum og er strax búinn að festa sæti sitt í byrjunarliðinu. Stefán Ingi Sigurðarson, sem kom frá Sandefjord, kom inn af bekknum hálftíma fyrir leikslok.
Eagles eru í 12. sæti með 26 stig eftir 24 umferðir.
Athugasemdir



