Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 12:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fékk hæstu meðmæli frá Heimi Guðjóns
Logi Hrafn og Heimir í bakgrunni.
Logi Hrafn og Heimir í bakgrunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir og Túfa.
Heimir og Túfa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Hrafn Róbertsson var í síðustu viku kynntur sem nýr leikmaður IFK Värnamo í Svíþjóð. Þar hittir hann fyrir þjálfarann Srdjan Tufegdzic - Túfa.

Logi fékk hæstu meðmæli áður en Värnamo ákvað að kaupa Loga frá króatíska liðinu Istra.

„Eitt af okkar forgangsmálum eftir að ég kom inn var að fá inn sexu. Það voru nokkur nöfn á blaði og Logi var eitt af þeim. Yfirnjósnarinn og íþróttastjórinn eru með mælitækin til að meta hvað vantar og hver passar best. Það kom í ljós að Logi var efstur á blaði, ég gat hjálpað með því að segja hvernig karakter er. Svo náðum við samkomulagi við Istra," segir Túfa við Fótbolta.net. Hann tók við sem þjálfari Värnamo í lok 2025 eftir að hafa stýrt Val í rúmt ár.

„Ég vildi fá hann í Val þegar hann fór til Króatíu, var þá samningslaus. Ég talaði í fyrsta sinn við hann núna í aðdragandanum að þessum skiptum, ekki nema eitthvað smá kannski eftir leiki."

Túfa var aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val þegar liðið varð Íslandsmeistari 2020 og eru þeir góðir vinir. Heimir þekkir vel til Loga, þjálfaði hann 2023-24 hjá FH.

„Þegar Heimir Guðjóns segir að Logi skori einna hæst af þeim leikmönnum sem hann hefur þjálfað þá þarf ég ekki að heyra mikið meira. Það var líka upplifun mín þegar ég mætti honum í leikjum. Þetta snýst mest um karakterinn hjá okkur þegar við fáum inn nýja menn, svo er prófíllinn betur skoðaður."

„Hann byrjaði að æfa með okkur á mánudag, kom strax flottur inn, mótiveraður. Þegar menn mæta hungraðir og mótiveraðir þá gerast flottir hlutir. Hann ætlar að hjálpa liðinu og vonandi taka næsta skref á sínum ferli,"
segir Túfa. Logi er 21 árs og getur bæði spilað sem miðvörður og miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner