Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 20:38
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Dýrmætt fyrir St. Pauli - Stuttgart heppnir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í efstu deild þýska boltans þar sem St. Pauli vann afar mikilvægan fallbaráttuslag á heimavelli gegn Werder Bremen.

Werder Bremen var sterkara liðið allan leikinn en nýtti færin sín illa, svo staðan var markalaus í leikhlé.

Hauke Wahl náði forystunni fyrir heimamenn á 55. mínútu og jafnaði Jovan Milosevic metin áður en Joel Fujita gerði sigurmark St. Pauli á 70. mínútu.

Bæði lið eru áfram í fallsæti eftir þessa viðureign. St. Pauli er þar einungis á markatölu með 20 stig eftir 23 umferðir, einu stigi meira heldur en Bremen.

Botnlið Heidenheim tók svo á móti meistaradeildarbaráttuliði Stuttgart og voru fjögur mörk skoruð í fjörugum fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að taka forystuna en staðan var 2-2 í leikhlé.

Stuttgart hafði verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum en heimamenn í Heidenheim spiluðu frábæran seinni hálfleik en nýttu ekki færin sem þeir sköpuðu.

Staðan hélst 2-2 allt þar til á lokakaflanum þegar Sirlord Conteh náði að gera það sem heimamenn vonuðust til að væri sigurmark, en svo reyndist ekki. Deniz Undav, fyrrum leikmaður Brighton, náði að jafna metin á 89. mínútu, svo lokatölur urðu 3-3.

Stuttgart er í fjórða sæti þýsku deildarinnar með 43 stig eftir 23 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan RB Leipzig í meistaradeildarbaráttunni.

Heidenheim er aðeins með 14 stig á botni deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.

St. Pauli 2 - 1 Werder Bremen
1-0 Hauke Wahl ('55 )
1-1 Jovan Milosevic ('62 )
2-1 Joel Chima Fujita ('70 )

Heidenheim 3 - 3 Stuttgart
0-1 Chris Fuhrich ('5 )
1-1 Eren Dinkci ('20 )
2-1 Arijon Ibrahimovic ('34 , víti)
2-2 Maximilian Mittelstadt ('45 , víti)
3-2 Sirlord Conteh ('82 )
3-3 Deniz Undav ('88 )
Athugasemdir
banner
banner
banner