Amin Cosic var allt í öllu í liði KR sem vann stórsigur á Stjörnunni, 4-0, í undanúrslitum Lengjubikarsins á laugardaginn. Amin braut ísinn og bætti síðar við þriðja marki KR. Þá lagði hann einnig upp fjórða markið þegar Alexander Rafn Pálmason innsiglaði sigurinn.
Amin gekk til liðs við KR um mitt síðasta sumar frá Njarðvík. Hann kom við sögu í ellefu leikjum í deildinni á síðasta tímabili og skoraði eitt mark.
Í viðtali eftir leikinn á laugardaginn sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR að Amin hefði tekið stór skref fram á við á undirbúningstímabilinu.
„Amin er búinn að stíga gríðarlega upp í vetur. Hugarfarið, ekki það að það hafi verið lélegt, en hann hefur náð stöðugleika á æfingum. Hann er farinn að vera öflugur báðum megin vallarins, hvort sem það er varnar- eða sóknarlega, og þegar hann er í gír eins og í dag þá er bara mjög erfitt að eiga við hann.“
Athugasemdir



