City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 12:00
Elvar Geir Magnússon
Moore ekki með Wales í umspilinu
Mynd: EPA
Kieffer Moore, sóknarmaður Wrexham, verður ekki með Wales í umspilinu fyrir HM vegna meiðsla aftan í læri.

Þessi 33 ára leikmaður meiddist í tapleik gegn Chelsea í bikarnum fyrr í þessum mánuði.

Hann hefur misst af síðustu tveimur Championship-leikjum; gegn Hull og Swansea. Ekki er búist við því að hann snúi aftur fyrr en í apríl.

Wales er að fara að mæta Bosníu og Hersegóvínu 26. mars og ef sigur vinnst þar mun liðið leika úrslitaleik við Ítalíu eða Norður-Írland fimm dögum síðar, þar sem HM sæti verður í boði.

„Kieffer verður ekki klár fyrir landsleikina, sem er högg fyrir hann og fyrir Wales," segi Phil Parkinson, stjóri Wrexham.
Athugasemdir
banner
banner
banner