City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 09:45
Elvar Geir Magnússon
City, Liverpool og Arsenal fylgjast með Hall
Powerade
Lewis Hall vinstri bakvörður Newcastle.
Lewis Hall vinstri bakvörður Newcastle.
Mynd: EPA
Það eru margra augu á ungum vinstri bakverði Newcastle og þá er möguleiki á að City fái leikmann Tottenham á afsláttarverði. Þetta og fleira í stuttum og hnitmiðum slúðurpakka ennan mánudaginn.

Njósnarar frá Manchester City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Borussia Dortmund og Barcelona hafa fylgst grannt með Lewis Hall (21), varnarmanni Newcastle. (Caughtoffside)

Manchester City gæti einnig keypt spænska varnarmanninn Pedro Porro (26) fyrir talsvert lægri upphæð en þær 80 milljónir punda sem hann er metinn á ef Tottenham mun falla. (Football Insider)

Sunderland er tilbúið að borga 12,9 milljónir punda fyrir spænska miðjumanninn Thiago Pitarch (18) frá Real Madrid. (Fichajes)

Félög á Englandi og víðar um Evrópu hafa sett sig í samband við Liverpool til að fræðast um hvort georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili (25) sé falur. (TeamTalk)

Tottenham er að skoða allt að átta stjóra sem gætu tekið við liðinu. Sean Dyche, Mauricio Pochettino og Roberto De Zerbi eru á lista. (Talksport)

Crystal Palace ætlar að berjast við Leeds um bandaríska framherjann Patrick Agyemang (25) hjá Derby. (Football Insider)

Chelsea gæti flýtt fyrir áætlunum sínum um að kaupa franska vængmanninn Rayane Messi (18) frá Strasbourg þar sem vaxandi áhugi er frá Bayern München, Barcelona og Paris St-Germain. (Teamtalk)
Athugasemdir
banner
banner