Heimild: Campo
Viktor Bjarki Daðason ungstirni FCK er talinn þriðji verðmætasti leikmaður dönsku Superligaen samkvæmt samantekt danska miðilsins Campo.
Viktor er metinn á rúmar 14 milljónir evra sem samsvarar yfir tveimur milljörðum íslenskra króna.
Viktor er metinn á rúmar 14 milljónir evra sem samsvarar yfir tveimur milljörðum íslenskra króna.
Samantektin miðar út frá gagnabanka CIES Football Observatory sem hefur unnið tölfræðilegt líkan sem metur áætlað markaðsvirði leikmanna.
Viktor hefur komið við sögu í 21 leik með FCK á tímabilinu og skorað sjö mörk, þar á meðal eitt á Nývangi gegn Barcelona. Hann hefur þó verið utan hóps í síðustu tveimur leikjum liðsins.
Viktor á enn eftir að spila A-landsleik, en hann gæti fengið tækifærið í æfingaleikjum gegn Kanada og Haítí í lok mánaðar. Hópurinn fyrir verkefnið tilkynntur næstkomandi miðvikudag.
Athugasemdir


