Þór tekur á móti Fylki í undanúrslitum A-deildar Lengjubikarsins annað kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á Greifavellinum.
Athygli vekur að ekki er spilað á nýjum Þórsvelli en Þórsarar fengu í vetur gervigrasvöll á svæði sitt. Sá völlur er ekki alveg tilbúinn.
Þórsarar eru með Bogann til taks en vilji er til þess að spila leikinn utandyra og KA menn voru tilbúnir að lána grönnunum Greifavöllinn.

Þórsvöllur er nálægt því að verða klár. Bursta þarf gervigrasið og þar sem það hefur verið kalt og snjóað fyrir norðan er ekki hægt að gera það fyrir leikinn á morgun.
Sigurliðið í leiknum á morgun mætir KR í úrslitaleik um næstu helgi.
Athugasemdir