Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   mán 16. mars 2026 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Markvarðabras hjá Bayern - Sextán ára gæti þreytt frumraun sína
Vincent Kompany gæti þurft að setja 16 ára markvörð í markið í seinni leiknum gegn Atalanta
Vincent Kompany gæti þurft að setja 16 ára markvörð í markið í seinni leiknum gegn Atalanta
Mynd: EPA
Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, er með alvöru hausverk fyrir seinni leik liðsins gegn Atalanta í Meistaradeild Evrópu, en hann gæti þurft að treysta á 16 ára markvörð unglingaliðsins í leiknum.

Manuel Neuer, aðalmarkvörður Bayern, verður frá vegna meiðsla fram í apríl og er því ekki til taks.

Jonas Urbig var í markinu hjá Bayern gegn Atalanta í fyrri leiknum en fékk heilahristing og má því líklegast ekki spila seinni leikinn sem fer fram á miðvikudag.

Svein Ulreich kom í markið gegn Bayer Leverkusen um helgina og átti frábæran leik sem var hans fyrsti í 539 daga, en hann meiddist í leiknum og algerlega óljóst hvort hann verði búinn að jafna sig fyrir Meistaradeildarleikinn.

Bayern er því að skoða hvaða aðrir kostir eru í stöðunni. Leon Klanac, aðalmarkvörður U19 ára liðsins, er einnig á meiðslalistanum og gæti Bayern þurft að leita til hins 16 ára gamla Leonard Prescott sem er varamarkvörður U19 ára liðsins.

Prescott er fæddur í Bandaríkjunum en flutti ungur að árum til Þýskalands. Hann kom til Bayern frá Union Berlín á síðasta ári og líklega ekki að búast við því að taka stökkið upp í aðalliðið á þessum tímapunkti.

Hann er 1,96 á hæð og komið við sögu í sjö leikjum með yngri landsliðum Þýskalands.

Þess má til gamans geta að hann var á bekknum hjá Bayern í fyrri leiknum en kom ekki við sögu. Ef hann spilar á miðvikudag verður hann yngsti markvörður í sögu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner