Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, segir Bruno Fernandes vera besta leikmann deildarinnar á þessari leiktíð en þetta sagði hann í Match of the Day.
Fernandes hefur verið í ár, eins og önnur ár, einn af bestu leikmönnum United.
Hann bætti félagsmet Man Utd þegar kemur að stoðsendingum á einu tímabili í deildinni er hann lagði upp tvö mörk í 3-1 sigrinum á Aston Villa í gær.
Fernandes er kominn með sextán stoðsendingar og bætti met David Beckham sem lagði upp fimmtán deildarmörk á einu tímabili.
Þá hefur hann skorað sjö mörk en Rooney er á þeirri skoðun að Fernandes hafi verið besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.
„Mér finnst hann vera besti leikmaður deildarinnar á þessu tímabili,“ sagði Rooney.
„Fyrri hálfleikurinn var flatur hjá báðum liðum og kannski núlluðu þau hvort annað út, en í seinni hálfleiknum spilaði United með meiri orku. Aðalmaður United var aftur Bruno Fernandes. Það var hann sem réði úrslitum,“ sagði hann enn fremur.
Man Utd er í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig og á góðri leið með að koma sér í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Bruno hefur átt stóran þátt í góðum árangri liðsins síðustu vikur.
Síðan hann kom frá Sporting fyrir sex árum hefur hann komið að 208 mörkum í 319 leikjum í öllum keppnum.
Athugasemdir


