Fyrr í þessum mánuði fór fram fyrsta Pub Quiz Fótbolta.net þennan veturinn. Keppni fór fram á Ölveri í Glæsibæ og var þátttakan að vanda afskaplega fín.
Hjörvar Hafliðason og Tómas Þór Þórðarson stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni.
Hjörvar Hafliðason og Tómas Þór Þórðarson stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni.
Stefnt er að því að halda annað Quiz í desember, sérstakt Jóla-Quiz.
Spurt er úr öllum áttum fótboltaheimsins en til gamans má hér að neðan sjá spurningarnar úr síðustu keppni.
Þeir lesendur sem ekki komust á Ölver geta nú spreytt sig til gamans en í fyrramálið birtum við svörin við spurningunum.
Góða skemmtun!
2. Á árunum 2000 til 2004 skoraði framherji 11 mörk í 25 mörk fyrir Pólverja. Sá framherji var fæddur í Nígeríu en fékk pólskt vegabréf eftir að hafa spilað í Póllandi. Hver er maðurinn?
4. Undanfarin ár hafa nokkrir reyndir leikmenn úr enska boltanum spilað á Íslandi. Þar má nefna David James, Nigel Quashie og Lee Sharpe á sínum tíma. Árið 2011 fékk ÍBV enskan miðjumann til sín en hann átti yfir 100 leiki að baki í ensku úrvalsdeildini. Leikmaðurinn stimplaði sig þó lítið inn hjá ÍBV og spilaði einungis fimm leiki í Pepsi-deildinni. Hver er þetta?
10. Jamie Vardy hefur gjörsamlega slegið í gegn með Leicester á þessu tímabili en hann skorar í öllum leikjum og er markahæstur í deildinni. Vardy spilaði tímabilið 2011/2012 í ensku utandeildinni áður en Leicester keypti hann. Með hvaða liði spilaði hann í utandeildinni?
14. Karim Benzema er mikið í fréttum af vondum ástæðum. Ég vil hins vegar vita með hvaða félagsliði Benzema spilaði áður en hann fór til Real Madrid?
15. Árið 2005 þurfti Manchester City sigur í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar til að ná Evrópusæti. Undir lok leiks ákvað stjóri Manchester City að setja markvörðinn sinn í fremstu víglínu og varamarkvörðinn í markið. Það dugði þó ekki til því að City gerði 1-1 jafntefli. Hver var stjórinn og hver var markvörðurinn? Eitt stig í viðbót ef þið getið nefnt framherja sem sat á bekknum og horfði á þetta allt saman gerast án þess að fá að fara inn á. 3 stig
16. Þessir fjórir fótboltamenn eiga allir íslenskan liðsfélaga. Nú viljum við fá nöfn á þeim fjórum íslensku fótboltamönnum. 4 stig
18. Það er alltaf jafn sturlað að hugsa til þess að Fram hafi orðið bikarmeistari 2013. Þetta er byrjunarlið Fram sem vann Stjörnuna í úrslitaleiknum en þarna vantar reyndar tvo elstu leikmenn byrjunarliðsins. Hverja vantar? 2 stig
19. Árið 2013 var ekki bara árið sem Fram varð bikarmeistari. Þetta var líka árið þar sem Wigan varð bikarmeistari. Hver skoraði sigurmarkið gegn Manchester City í bikarúrslitaleiknum?
20. Eitt stig í boði. Raðið þessum landsliðsmönnum í röð, sá sem hefur spilað flesta A-landsleiki fyrst og sá sem hefur spilað fæsta aftast.
21. Þýska goðsögnin Gerd Muller fagnaði 70 ára afmæli sínu á dögunum. Muller skoraði 68 mörk í 62 landsleikjum fyrir Vestur-Þýskaland á ferli sínum og varð fjórum sinnum þýskur meistari með Bayern München. En í hvaða landi lauk hann leikmannaferli sínum?
23. Savage lék meðal annars með Leicester og Derby á sínum ferli og þótti grófur leikmaður þó hann hafi aðeins einu sinni fengið rautt spjald í ensku úrvalsdeildinni. Það skapaðist þó mikið vesen fyrir einn leik með Leicester þegar Savage fékk skyndilega magakveisu. Ósköpin enduðu með því að Savage var sektaður af félagi sínu og enska knattspyrnusambandinu. Hvað gerði hann?
27. Hver var aðalfyrirliði íslenska landsliðsins áður en Lars tók við og gerði Aron Einar að fyrirliða?
Athugasemdir