Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 25. september 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Kristian Nökkvi æfir með Nordsjælland
Mynd: Raggi Óla
Kristian Nökkvi Hlynsson, leikmaður Breiðabliks, æfir þessa dagana með Nordsjælland í Danmörku samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Kristian er fæddur árið 2004 en hann hefur æft með aðalliði Nordsjælland.

Í dag spilaði Kristian með U19 ára liði Nordsjælland í æfingaleik gegn skoska liðinu Rangers.

Kristian hefur í sumar spilað bæði með þriðja flokki Breiðabliks en hann á þrjá leiki að baki með U16 ára liði Blika.

Kristian lék á dögunum sinn fyrsta meistaraflokksleik í æfingaleik með Breiðabliki gegn Víkingi R. en þar mætti hann bróður sínum Ágústi Eðvaldi sem spilar með Víkingi.
Athugasemdir
banner
banner