Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fim 29. janúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Högg fyrir Benoný - Frá í allt að tvo mánuði
Mynd: BBA
Benoný Breki Andrésson var kominn á fínt skrið með liði sínu Stockport á Englandi eftir að hafa verið í um mánuð frá vegna ökklameiðsla.

Hann skoraði sigurmark tvær helgar í röð, hann kominn í byrjunarliðið og liðið á góðu skriði. Hann lenti í því að meiðast aftur á sama ökkla og verður hann frá næstu 6-8 vikurnar vegna meiðslanna.

Það gæti því farið svo að Benoný spili ekki aftur fyrir Stockport fyrr en í lok mars.

Benoný er tvítugur framherji sem Stockport keypti af KR eftir tímabilið 2024 á Íslandi. Hann hefur verið í stóru hlutverki í U21 landsliðinu og sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði að markmiðið væri að festa sig í sessi í byrjunarliði Stockport og koma sér í A-landsliðið.

Stockport situr sem stendur í fjórða sæti ensku C-deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti í Championship-deildinni eftir að hafa fengið tíu stig úr síðustu fjórum leikjum. Liðið er einnig komið í 8-liða úrslit neðri deildar bikarsins og á leik gegn Port Vale í þeirri keppni eftir tvær vikur.

Stöðutaflan England England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Lincoln City 36 23 8 5 66 31 +35 77
2 Cardiff City 36 22 7 7 69 39 +30 73
3 Bolton 36 17 13 6 53 36 +17 64
4 Bradford 36 19 7 10 47 39 +8 64
5 Stockport 34 16 8 10 47 43 +4 56
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Huddersfield 36 16 7 13 56 46 +10 55
7 Reading 36 14 12 10 53 47 +6 54
8 Stevenage 35 15 9 11 39 37 +2 54
9 Wycombe 36 14 11 11 52 39 +13 53
10 Plymouth 36 16 4 16 54 51 +3 52
11 Wimbledon 35 14 7 14 46 49 -3 49
12 Luton 36 13 9 14 46 45 +1 48
13 Barnsley 34 13 9 12 56 56 0 48
14 Peterboro 35 14 4 17 50 49 +1 46
15 Mansfield Town 34 11 11 12 40 37 +3 44
16 Exeter 36 11 9 16 40 43 -3 42
17 Burton 36 10 10 16 39 51 -12 40
18 Doncaster Rovers 35 11 7 17 38 58 -20 40
19 Leyton Orient 35 11 6 18 47 59 -12 39
20 Wigan 35 9 11 15 36 50 -14 38
21 Blackpool 36 10 8 18 42 59 -17 38
22 Rotherham 35 9 8 18 33 48 -15 35
23 Northampton 36 9 8 19 31 48 -17 35
24 Port Vale 33 6 9 18 26 46 -20 27
Athugasemdir
banner