Juve reynir við Kolo Muani og Zirkzee - Mateta orðaður við Spurs - Fundað um Maguire
   fim 29. janúar 2026 14:36
Elvar Geir Magnússon
Neves ekki á leið til Evrópu - Framlengir við Al-Hilal
Rúben Neves í landsleik með Portúgal.
Rúben Neves í landsleik með Portúgal.
Mynd: EPA
Rúben Neves hefur verið orðaður við Manchester United, Real Madrid og Newcastle í glugganum en nú er ljóst að hann er ekki á förum eitt eða neitt.

Talið var að þessi fyrrum miðjumaður Wolves gæti verið á leið aftur í Evrópufótboltann en svo er ekki.

Hann er á barmi þess að skrifa undir þriggja ára framlengingu hjá Al-Hilal í Sádi-Arabíu, til 2029.

Neves, sem er 28 ára portúgalskur landsliðsmaður, hefur verið hjá Al-Hilal síðan 2023
Athugasemdir