Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 29. ágúst 2021 15:27
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Vísir 
Allir starfsmenn KSÍ boðaðir á fund klukkan 16
Allir starfsmenn KSÍ funda klukkan 16
Allir starfsmenn KSÍ funda klukkan 16
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allir starfsmenn KSí hafa verið boðaðir á fund hjá sambandinu klukkan 16:00 í dag en Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu Vísis.

KSÍ fundaði í allan gærdag en sambandið hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir það hvernig það hefur tekið á ofbeldismálum landsliðsmanna.

Sambandið hélt áfram að funda í dag og nú hefur verið boðað til fundar hjá öllum starfsmönnum KSÍ. Sá fundur hefst klukkan 16:00 en Klara gaf ekki frekari upplýsingar um erindi fundarins.

Það má gera ráð fyrir að ofbeldismálin verði rædd á fundinum og má vænta frekari frétta síðar í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner