Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 18. maí 2018 19:00
Magnús Már Einarsson
Zidane: Ronaldo 120% klár í úrslitaleikinn gegn Liverpool
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, segir að Cristiano Ronaldo sé klár í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool eftir átta daga.

Hinn 33 ára gamli Ronaldo meiddist á ökkla gegn Barcelona fyrr í mánuðinum og hefur verið frá keppni síðan þá.

Ronaldo gæti spilað með Real Madrid gegn Villarreal í lokaumferð La Liga á morgun.

„Nákvæmlega núna er hann 120%. Hann er í lagi. Ef Cristiano er 120% þá er það fínt fyrir mig," sagði Zinedine Zidane þjálfari Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner