Böðvar Böðvarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í ÍA frá FH.
Í síðustu viku var sagt frá því að Böðvar væri að öllum líkindum á förum frá FH því hann hefði fengið þau skilaboð frá þjálfara liðsins, Jóhannesi Karli Guðjónssyni, að hann mætti finna sér nýtt félag.
Hann var í kjölfarið mest orðaður við ÍA og Val og slúðrað um að Stjarnan hafi reynt að fá hann en það er ekki rétt. Fleiri félög höfðu áhuga.

Þessi þrítugi vinstri bakvörður er uppalinn hjá FH og vann tvo Íslandsmeistaratitla með liðinu áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Böðvar sneri heim fyrir tímabilið 2023 og hefur verið í lykilhlutverki hjá Fimleikafélaginu.
Hann var varafyrirliði liðsins á síðasta tímabili og átti að taka við sem fyrirliði eftir að Björn Daníel Sverrisson hætti síðasta haust. Böðvar á tvö ár eftir af samningi sínum við FH.
ÍA hefur styrkt sig mikið í vetur, Gísli Eyjólfsson, Guðmundur Þórarinsson og Rafael Máni Þrastarson hafa gengið í raðir félagsins. Miðað við heimildir Fótbolta.net er Böðvar á leiðinni og ÍA hefur reynt að kaupa Tryggva Hrafn Haraldsson af Val.
Athugasemdir