Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 11:07
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Kraumar í Kaplakrika - „Er Böddi látinn fara vegna þess að hann er of stór?“
Böðvar er á leið til ÍA eftir að honum var tilkynnt að hann mætti yfirgefa FH.
Böðvar er á leið til ÍA eftir að honum var tilkynnt að hann mætti yfirgefa FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mikil pressa á Jóa og þetta gæti farið fljótt að súrna ef árangurinn lætur á sér standa.“
„Það er mikil pressa á Jóa og þetta gæti farið fljótt að súrna ef árangurinn lætur á sér standa.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar hefur leikið 174 leiki með Fimleikafélaginu.
Böðvar hefur leikið 174 leiki með Fimleikafélaginu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eins og greint var frá í síðustu viku er Böðvar Böðvarsson orðinn frjáls ferða sinna og er á leið frá uppeldisfélaginu, FH. Í samtali við Fótbolta.net sagði Böðvar að Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari liðsins, teldi sig ekki hafa not fyrir hann.

Böðvar er 30 ára vinstri bakvörður og uppalinn hjá FH. Hann varð tvisvar Íslandsmeistari með félaginu áður en hann hélt í atvinnumennsku erlendis. Hann sneri aftur heim fyrir tímabilið 2023 og hefur síðan gegnt lykilhlutverki hjá FH.

Nú hefur verið greint frá því að Böðvar sé á leið til ÍA, en ákvörðun FH um að leyfa Böðvari að fara var til umræðu í útvarpsþætti Fótbolta.net síðastliðinn laugardag.

„Mér finnst persónulega mjög sérstakt að Böddi sé látinn fara frá FH. Hann er stærsti og mesti karakterinn í klefanum. Hvort það sé einhver pæling að gera liðið minna í sér og karakterslaust veit ég ekki,“ segir Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur Fótbolta.net.

Elvar Geir tekur undir og bendir á að liðið hafi þegar misst reynslumikinn mann í Birni Daníel, sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil. Baldvin heldur áfram:

„Böddi er alinn upp í FH-liði sem var sterkt og stútfullt af sigurvegurum, en nú er verið að láta það fara.“

Því næst tekur Tómas Þór Þórðarson til máls: „Ég veit ekki hvort Jói Kalli muni nokkurn tímann gefa útskýringar á þessu, hvort sem það væri inn á við eða út á við. En FH-ingar eru afar ósáttir við þessa ákvörðun. Ég veit að það er ekki eining um hana í kringum Jóa Kalla, þó menn standi samt með honum. Það verður að gefa þeim það. Þetta er ákvörðun sem getur haft afleiðingar.

Að því sögðu, ef þú ætlar að gera jafn miklar breytingar og Jói Kalli virðist stefna að, þá gæti þetta verið ákveðin hraðahindrun sem hann kaus að takast strax á við. Böddi og Björn Daníel eru tveir risastórir karakterar og leiðtogar í klefanum. Ég spyr mig líka: Er Jói Kalli að láta hann fara út af því, er hann of stór?“
segir Tómas.

Ólga í kringum Jóa Kalla
Í kjölfarið var rætt um stöðu Jóa Kalla sem nýs þjálfara FH. Hann tók við liðinu af Heimi Guðjónssyni eftir síðasta tímabil sem var umdeild ákvörðun

„Heimir var mjög vinsæll í Krikanum og hafði náð að festa FH í efri hluta deildarinnar undanfarin þrjú tímabil, eftir erfið ár þar á undan. Jói Kalli kemur inn, svarar ekki í símann og veitir engin viðtöl. Hann veit að hann er kominn á jarðsprengjusvæði og við sjáum það að Óli Jó gagnrýndi hann til dæmis.

Síðan kemur þessi ákvörðun og talað er um að hann sé að feta í fótspor föður síns; Agi er upphaf árangurs, og byrjar meðal annars að banna nikótín á æfingasvæðinu. Það er mikil pressa á Jóa og þetta gæti farið fljótt að súrna ef árangurinn lætur á sér standa,“
sagði Elvar Geir að lokum.
Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri
Athugasemdir
banner
banner