Rodri, miðjumanni Manchester City, var mikið niðri fyrir í viðtali eftir leik liðsins gegn Tottenham á sunnudag. City komst í 0-2 í leiknum og eftir fyrri hálfleikinn bendi ekkert til annars en öruggs sigurs City í leiknum.
Heimamenn í Tottenham tóku sig saman í andlitinu og Dominic Solanke skoraði tvennu í seinni hálfleik og lokatölur urðu 2-2. Fyrra mark Solanke er ansi umdeilt. Hann skoraði eftir að hafa farið illa með Khusanov en Marc Guehi kom svo fæti sínum fyrir skot Solanke og enski framherjinn fór í fótinn á varnarmanninum. Fóturinn á Guehi fór í boltann sem rataði í markið. Markið er skráð á Solanke. Úrvalsdeildin gaf í kjölfarið út að þetta hafi ekki verið brot þar sem Solanke hafi verið að leika boltanum.
Rodri hefði viljað sjá aukaspyrnu dæmda í því atviki og segir að það hafi hallað á City í dómgæslunni í síðustu leikjum.
Heimamenn í Tottenham tóku sig saman í andlitinu og Dominic Solanke skoraði tvennu í seinni hálfleik og lokatölur urðu 2-2. Fyrra mark Solanke er ansi umdeilt. Hann skoraði eftir að hafa farið illa með Khusanov en Marc Guehi kom svo fæti sínum fyrir skot Solanke og enski framherjinn fór í fótinn á varnarmanninum. Fóturinn á Guehi fór í boltann sem rataði í markið. Markið er skráð á Solanke. Úrvalsdeildin gaf í kjölfarið út að þetta hafi ekki verið brot þar sem Solanke hafi verið að leika boltanum.
Rodri hefði viljað sjá aukaspyrnu dæmda í því atviki og segir að það hafi hallað á City í dómgæslunni í síðustu leikjum.
„Í hreinskilni veit ég ekki hvernig mér á líða. Ég hef séð myndirnar, gat ekki séð þetta í leiknum. En þetta er augljóst brot, augljóst brot! Það er ástæða fyrir því að það er VAR (myndbandsdómgæsla). Svona atriði skipta máli. Við erum að reyna gera okkar besta og ef þeir skora ekki þetta fyrsta mark þá mögulega vinnum við þennan leik. Það er þessi leikur og það eru fleiri leikir. Þetta getur ekki átt að vera svona. Ég tala aldrei um dómarana, ég ber mikla virðingu fyrir þeirra vinnu, en þeir verða að fylgjast með þessum hlutum. Hann sparkar í fótinn á Marc, það er skýrt og þetta er klárt brot. Það er ekki bara þessi leikur, það eru 2-3 leikir í röð og ég veit í hreinskilni ekki af hverju. Ég veit að við höfum unnið „of mikið" og fólk vill ekki að við vinnum. En dómarinn þarf að vera hlutlaus. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt því við leggjum svo hart að okkur. Við þurfum að halda áfram, en við erum pirraðir, því þetta er klárlega brot. Hann sparkaði í fótinn á honum og eftir það fer boltinn í netið. Það þarf að taka eftir svona hlutum. Annars verður þetta erfitt fyrir alla því í þessari deild skipta litlu atriðin miklu máli og allt telur," sagði Rodri í viðtali eftir leikinn.
„Við vildum vinna og ætlum að halda áfram að berjast því það er okkar einkenni. En það verður að vera sanngirni þegar svona kemur upp. Það geta allir gert mistök, enginn hefur áhyggjur þegar það eru bara ein mistök, en ef það eru 1-2-3-4 í röð, þá gengur þetta ekki upp. Ég er ekki að segja að getustig dómarana sé slæmt, það er mjög gott, en við verðum að taka eftir svona hlutum. Við höfum lagt svo mikið á okkur og svona hlutir mega ekki skera úr um hvernig leikir fara. Í dag hafði þetta því miður áhrif," bætti Rodri við.
Stjórinn Pep Guardiola benti á það eftir leikinn að ef þetta hefði verið öfugt, ef Guehi hefði sparkað í Solanke, þá hefði dómarinn dæmt vítaspyrnu.
City-menn voru ósáttir eftir tapið gegn Manchester United í síðasta mánuði þar sem margir voru á því að Diogo Dalot hefði átt að fá rautt spjald fyrir brot sitt á Jeremy Doku. Dalot slapp með gula spjaldið. City er sem stendur sex stigum á eftir Arsenal í titilbaráttunni þegar 14 umferðir eru eftir.
Surely this is a foul from Solanke on Guehi?! ???? pic.twitter.com/GLVKqH2MmN
— EPL Bible (@EPLBible) February 1, 2026
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 24 | 16 | 5 | 3 | 46 | 17 | +29 | 53 |
| 2 | Man City | 24 | 14 | 5 | 5 | 49 | 23 | +26 | 47 |
| 3 | Aston Villa | 24 | 14 | 4 | 6 | 35 | 26 | +9 | 46 |
| 4 | Man Utd | 24 | 11 | 8 | 5 | 44 | 36 | +8 | 41 |
| 5 | Chelsea | 24 | 11 | 7 | 6 | 42 | 27 | +15 | 40 |
| 6 | Liverpool | 24 | 11 | 6 | 7 | 39 | 33 | +6 | 39 |
| 7 | Brentford | 24 | 11 | 3 | 10 | 36 | 32 | +4 | 36 |
| 8 | Sunderland | 24 | 9 | 9 | 6 | 27 | 26 | +1 | 36 |
| 9 | Fulham | 24 | 10 | 4 | 10 | 34 | 35 | -1 | 34 |
| 10 | Everton | 24 | 9 | 7 | 8 | 26 | 27 | -1 | 34 |
| 11 | Newcastle | 24 | 9 | 6 | 9 | 33 | 33 | 0 | 33 |
| 12 | Bournemouth | 24 | 8 | 9 | 7 | 40 | 43 | -3 | 33 |
| 13 | Brighton | 24 | 7 | 10 | 7 | 34 | 32 | +2 | 31 |
| 14 | Tottenham | 24 | 7 | 8 | 9 | 35 | 33 | +2 | 29 |
| 15 | Crystal Palace | 24 | 7 | 8 | 9 | 25 | 29 | -4 | 29 |
| 16 | Leeds | 24 | 6 | 8 | 10 | 31 | 42 | -11 | 26 |
| 17 | Nott. Forest | 24 | 7 | 5 | 12 | 24 | 35 | -11 | 26 |
| 18 | West Ham | 24 | 5 | 5 | 14 | 29 | 48 | -19 | 20 |
| 19 | Burnley | 24 | 3 | 6 | 15 | 25 | 47 | -22 | 15 |
| 20 | Wolves | 24 | 1 | 5 | 18 | 15 | 45 | -30 | 8 |
Athugasemdir



