Það er útlit fyrir að N'Golo Kante sé á leið til Fenerbahce frá Al-Ittihad eftir allt saman.
Kante var á leiðinni til Fenerbahce fyrir lok félagaskiptagluggans í gær en það gekk ekki eftir þar sem Al-Iittihad skilaði ekki ákveðnum pappírum á réttum tíma.
Kante vildi ekkert heitara en að ganga til liðs við Fenerbahce og það komu fréttir af því í kvöld að hann hafi farið í verkfall og ekki mætt á æfingu hjá Al-Ittihad til að pressa á félagið að selja sig.

Fabrizio Romano segir að Fenerbahce og Al-Ittihad hafi fengið grænt ljós frá FIFA og félagaskiptin geta gengið í gegn.
Marokkóski framherjinn Youssef En-Nesyri fer til Al-Ittihad á móti en hann á að taka við af Karim Benzema sem gekk til liðs við Al-Hillal sem er á toppnum í Sádi-Arabíu.
???????????? BREAKING: N’Golo Kanté to Fenerbahçe, HERE WE GO! ????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 3, 2026
Contract signed until June 2028 after termination of the contract @ Al Ittihad.
Fenerbahçe and Al Ittihad received the green light from FIFA after issues with documents and official statement.
Kanté ONLY wanted Fener. pic.twitter.com/WQmS1dtWP7
Athugasemdir