Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mið 04. febrúar 2026 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Allir stuðningsmenn Inter í bann eftir að einn kastaði blysi
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Inter hafa verið dæmdir í þriggja útileikjabann eftir að einn stuðningsmaður kastaði flugeld í átt að markverði Cremonese, með þeim afleiðingum að hann féll til jarðar, í 2-0 sigri Inter um helgina.

Stuðningsmenn Inter mega ekki mæta á leiki gegn Sassuolo 8. febrúar, Lecce 21. febrúar og Fiorentina 22. mars. Bannið gildir ekki í Meistaradeildinni svo stuðningsmenn mega fara til Noregs þegar Inter mætir Bodö/Glimt í Meistaradeildinni 18. febrúar.

Inter mætir Milan í grannaslag þann 8. mars en þá mega stuðningsmenn liðsins mæta. Liðin spila bæði heimaleiki sína á San Siro og Inter er talið 'útiliðið' í þessum leik en stuðningsmenn mega mæta þar sem þeir þurfa ekki að ferðast.

Stuðningsmenn sem eiga heima á Milanó svæðinu geta ekki keypt miða á þessa þrjá leiki.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 25 20 1 4 60 21 +39 61
2 Milan 24 15 8 1 40 18 +22 53
3 Napoli 25 15 5 5 38 25 +13 50
4 Roma 25 15 2 8 31 16 +15 47
5 Juventus 25 13 7 5 43 23 +20 46
6 Atalanta 25 11 9 5 34 21 +13 42
7 Como 24 11 8 5 38 18 +20 41
8 Bologna 25 9 6 10 34 32 +2 33
9 Lazio 25 8 9 8 26 25 +1 33
10 Sassuolo 25 9 5 11 29 35 -6 32
11 Udinese 25 9 5 11 28 38 -10 32
12 Parma 25 7 8 10 18 31 -13 29
13 Cagliari 25 7 7 11 28 35 -7 28
14 Torino 25 7 6 12 25 44 -19 27
15 Genoa 25 5 9 11 29 37 -8 24
16 Cremonese 25 5 9 11 21 33 -12 24
17 Lecce 25 6 6 13 17 31 -14 24
18 Fiorentina 25 4 9 12 29 39 -10 21
19 Pisa 25 1 12 12 20 42 -22 15
20 Verona 25 2 9 14 19 43 -24 15
Athugasemdir
banner