Líkurnar á því að Vinicius Junior geri nýjan samning við Real Madrid hafa aukist eftir að Xabi Alonso var rekinn sem stjóri. Samningur Brasilíumannsins rennur út 2027.
Real Madrid þarf að gera nýjan samning við hann á þessu ári ef félagið vill forðast hættu á að missa hann á frjálsri sölu. Leikmaðurinn virðist viljugur til að ná samkomulagi um nýjan samning.
Real Madrid þarf að gera nýjan samning við hann á þessu ári ef félagið vill forðast hættu á að missa hann á frjálsri sölu. Leikmaðurinn virðist viljugur til að ná samkomulagi um nýjan samning.
Esteve Calzada, formaður Al-Hilal, hefur staðfest að í Sádi-Arabíu sé fylgst náið með gangi mála. Þjóðarsjóður landsins er tilbúinn að fá Vini Jr í deildina.
„Hvað okkur varðar þá eru engar viðræður í gangi en formaður deildarinnar segir alltaf það sama þegar hann er spurður: Ef Vinicius Junior er fáanlegur þá munum við reyna að fá hann," segir Calzada.
Athugasemdir



