Manchester City og Real Madrid eigast við enn eina ferðina í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, en þetta verður fimmta árið í röð sem liðin etja kappi í útsláttarkeppninni.
Real Madrid hefur hingað til haft betur í viðureignum liðanna í útsláttarkeppninni. Madrídingar hafa þrisvar sinnum slegið Man City úr leik og tvisvar sinnum hefur City haft betur.
Fyrri leikur liðanna fer fram í Madríd næsta miðvikudagskvöld og verða bæði Erling Haaland og Eduardo Camavinga með eftir að hafa verið að glíma við meiðsli.
Haaland var hvíldur í FA bikarnum í gær eftir að hafa misst af naumum sigri Man City á útivelli gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í lok febrúar vegna smávægilegra meiðsla. Norska markavélin er þó ekki lengur að glíma við meiðsli og má búast við að Haaland byrji leikinn á Santiago Bernabéu.
Sömu sögu er að segja af Camavinga sem missti af síðustu tveimur leikjum Real vegna tannpínu. Hann er að ná fullum bata og er búist við að hann verði með á miðvikudaginn, líklegast í byrjunarliðinu.
Brasilíski kantmaðurinn Vinícius Júnior er klár í slaginn, en búist er við að Kylian Mbappé missi af leiknum vegna hnémeiðsla. Mbappé ætti að vera tilbúinn fyrir seinni leikinn í Manchester.
„Við verðum að vera fullkomnir ef við viljum hafa betur gegn Manchester City. Við viljum vera sókndjarfir og stjórna leiknum, við viljum sjá okkar bestu hliðar í sviðsljósinu. Við viljum berjast um hvern einasta bolta," segir Vinícius.
Athugasemdir



