Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 17:13
Elvar Geir Magnússon
Verkfalli Ronaldo lokið
Mynd: EPA
Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo hefur ákveðið að binda enda á verkfall sitt en hann hefur neitað að spila síðustu tvo leiki Al-Nassr í Sádi-Arabíu.

Ronaldo var ósáttur við metnaðarleysi félagsins á leikmannamarkaðnum og að Karim Benzema hafi farið til keppinautanna í Al-Hilal.

Eftir að hafa fundað með forráðamönnum félagsins er Ronaldo sagður hafa samþykkt að snúa aftur til leiks um næstu helgi, í leik gegn Al-Fateh.

„Aðdáendur í Sádi-Arabíu og um allan heim vilja sjá Cristiano spila og keppa aftur eins fljótt og auðið er. Stuðningurinn sem hann hefur fengið síðan hann kom til konungsríkisins er enn til staðar og það er enn mikið til að spila um,“ sagði háttsettur embættismaður í yfirlýsingu fyrir helgi.
Athugasemdir
banner