Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
banner
   þri 10. febrúar 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benzema sendi Ronaldo skilaboð sem bættu skap hans ekki
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Karim Benzema.
Karim Benzema.
Mynd: EPA
Það hefur verið mikið um dramatík í fótboltadeildinni í Sádi-Arabíu að undanförnu. Sú dramatík tengist tveimur af stærstu stjörnum deildarinnar, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema.

Benzema skipti nýverið frá Al-Ittihad til Al-Hilal en þau skipti vöktu mikla athygli. Benzema hafði verið markahæsti leikmaður Al-Ittihad frá komu sinni til félagsins en fór í verkfall í janúar eftir að hann fékk samningstilboð frá félaginu. Tilboðið var það lélegt að hann móðgaðist við það.

Hann skipti því yfir til toppliðs Al-Hilal, sem leikur undir stjórn Simone Inzaghi, og fékk samning sem gildir út næstu leiktíð.

Ronaldo var ósáttur við þessi skipti, það ósáttur að hann fór sjálfur í verkfall. Ronaldo var ósáttur við metnaðarleysi Al-Nassr, sem er félagið sem hann spilar með, á leikmannamarkaðnum og að Benzema hafi farið til keppinautanna í Al-Hilal.

Benzema sendi Ronaldo skilaboð
Telegraph segir frá því að skap Ronaldo hafi ekki skánað þegar hann fékk skilaboð frá Benzema í miðju verkfalli. Benzema og Ronaldo eru gamlir liðsfélagar úr Real Madrid en Benzema sendi Ronaldo skilaboð þar sem hann montaði sig víst af því að vera kominn til Al-Hilal.

Í skilaboðunum á Benzema að hafa sagt við Ronaldo að hann hafi ekki bara fengið launahækkun, hann væri líka að fara að vinna titilinn aftur.

Benzema vann titilinn með Al-Ittihad á síðustu leiktíð en Al-Hilal er núna á toppnum með einu stigi meira en Ronaldo og félagar í Al-Nassr.
Athugasemdir
banner
banner
banner