Víkingur Ólafsvík hefur tilkynnt að Ingólfur Sigurðsson muni ekki spila með félaginu á komandi tímabili.
„Ingólfur hefur lagt mikið af mörkum til liðsins á sínum tíma hjá félaginu, bæði innan vallar sem utan, og hefur verið mikilvægur hluti af starfsemi þess. Ingólfur lék með liðinu 2015 sem vann 1. deildina með yfirburðum og var einnig hluti af liðinu sem vann Fótbolta.net-bikarinn í fyrrahaust," segir í tilkynningu Ólafsvíkinga.

„Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur þakkar Ingólfi fyrir hans framlag og óskar honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni."
Víkingur Ólafsvík leikur í 2. deild karla en Ingólfur, sem verður 33 ára í vikunni, hefur einnig leikið fyrir KH og KV undanfarin ár.
„Ég vil þakka Víkingi Ólafsvík kærlega fyrir tímann minn hjá félaginu, traustið sem mér var sýnt og allt það góða samstarf sem ég hef átt við leikmenn, þjálfara og stuðningsfólk. Ég óska félaginu alls hins besta á komandi tímabili,“ segir Ingólfur Sigurðsson sjálfur.
Athugasemdir