Fótboltasérfræðingurinn Paul Scholes, sem er goðsögn eftir magnaðan feril sinn með Manchester United, hefur verið einn af fáum spekingum til að gagnrýna Michael Carrick, bráðabirgðastjóra Man Utd, undanfarnar vikur.
Gengi Man Utd hefur gjörsnúist við eftir að Carrick tók við stjórnartaumunum, en Scholes er ekki ánægður. Hann segist sjá neikvæð teikn á lofti og telur United hafa verið heppna með úrslit.
Rauðu djöflarnir heimsóttu Newcastle United í síðustu umferð í ensku úrvalsdeildinni og töpuðu 2-1 þrátt fyrir að vera leikmanni fleiri. Eftir leikinn setti Scholes inn athyglisverða færslu á Instagram hjá sér sem vakti mikil viðbrögð.
04.03.2026 22:53
Scholes með athyglisverða færslu
Scholes eyddi færslunni út í kjölfarið og er búinn að ræða um ástæðurnar sem lágu að baki.
„Þetta átti ekki á neinn hátt að vera móðgandi í garð Michael, hann er einn af fínustu náungum sem þú munt nokkurn tímann kynnast í fótboltaheiminum," sagði Scholes í spjalli við Nicky Butt og Wes Brown fyrrum leikmenn Man Utd.
„Hann er síðasti einstaklingurinn sem ég vil móðga og ég sendi honum skilaboð eftir þetta til að segja við hann að það hafi ekki verið ætlun mín að koma honum í uppnám. Hann svaraði mér og sagði að þetta væri ekkert mál.
„Ég held að fólk hafi bara tekið þessu á vitlausan hátt. Ég var bara að segja að mér fannst liðið ekki hafa spilað vel í síðustu fjórum leikjum, en samt tókst þeim að ná í góð úrslit.
„Við spiluðum saman hjá United undir stjórn besta þjálfara heims og hann sagði alltaf að stundum þarf maður smá heppni til að vinna leiki. Ég var ekki að meina neitt annað en það."
Scholes og Carrick voru liðsfélagar hjá Man Utd í tæplega sjö ár og þekkjast því vel.
„Ég var í raun að segja að Michael er mjög hæfileikaríkur stjóri útaf því að honum tókst að ná svona góðum úrslitum með liði sem var ekki að spila sérlega vel."
Nicky Butt tók undir orð Scholes og benti á að Carrick er sammála greiningu Scholes.
„Michael sagði það meira að segja sjálfur á fréttamannafundi að honum fannst liðið ekki vera búið að spila sérlega vel í síðustu leikjum."
Athugasemdir



