Davíð Smári Lamude þjálfari Njarðvíkur var til viðtals við fulltrúa Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli hans manna gegn Grindavík á útivelli í dag. Davíð fór yfir leikinn í stuttu máli.
„Fyrri hálfleikurinn algjörlega okkar eign. Réðum öllu í leiknum, skorum fullkomlega löglegt mark, meira að segja mögulega tvö. “
Sagði Davíð og sneri sér því næst að dómara leiksins Pétri Guðmundssyni sem hann var ekki ánægður með í leikslok.
„Það er eiginlega sjokkerandi að dómari á þessu stigi skuli eiga svona dapran dag í dag. Ég ætla bara að viðurkenna það. Það er svo sem hægt að kenna dómaranum um að þetta fór svona markalaust. “

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Njarðvík
Davíð hélt svo áfram að ræða eigið lið.
„Frammistaðan í seinni hálfleik mér fannst hún slitin. Mér fannst við á svona 15 mínútna kafla ekki líkir sjálfum okkur. Guy að mínu mati besti markmaður deildarinnar hjálpar okkur í dag og skilar í það minnsta stigi fyrir okkur.“
Njarðvíkurliðið hefur nú leikið 180 mínútur í deildinni án þess að skora mark. Er það áhyggjuefni hjá Davíð?
„Við fáum í dag 10 ef ekki 12 hornspyrnur bara hérna í fyrri hálfleik. Það svekkir mig að við séum ekki að nýta föstu leikatriðin betur. Við reyndar skorum mark eftir hornspyrnu í leiknum sem er ekki dæmt. En vissulega svekkjandi að vera ekki að nýta færin okkar betur en við eigum líka nokkra leikmenn inni og vonandi komumst við upp í þetta fljótlega. Það þarf allavega að gerast fljótt.“
Sagði Davíð en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.