Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   fös 01. maí 2026 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar!
Kvenaboltinn
Fanney Inga er Evrópubikarmeistari með Thelmu og Häcken
Fanney Inga er Evrópubikarmeistari með Thelmu og Häcken
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Thelma Karen kom inn af bekknum hjá Häcken
Thelma Karen kom inn af bekknum hjá Häcken
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sænsku meistararnir í Häcken eru Evrópubikarmeistarar í fyrsta sinn í sögunni eftir samanlagðan 4-2 sigur á Hammarby á Nordic-Wellness leikvanginum í Gautaborg í dag.

Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir eru á mála hjá Häcken og spiluðu þær báða úrslitaleikina gegn Hammarby.

Þær höfðu 1-0 sigur í fyrri leiknum í Stokkhólmi í síðustu viku og kláruðu síðan dæmið í dag.

Sænski framherjinn Felicia Schröder skoraði þrennu í 3-2 sigri á Hammarby í dag, en hún er aðeins 19 ára gömul. Mögnuð frammistaða hjá þessari frábæru fótboltakonu.

Fanney var í markinu í dag og þá kom Thelma Karen inn af bekknum í hálfleik. Guðrún Arnardóttir byrjaði hjá Hammarby en fór af velli eftir aðeins fjórtán mínútur.

Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Häcken er Evrópubikarmeistari og fyrsta liðið til þess að taka þann titil, en keppnin var sett á laggirnar á síðasta ári.

Häcken fær þátttökurétt í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, en liðið hafði þegar tryggt sér farseðilinn í aðra umferð í forkeppninni eftir að hafa unnið sænsku deildina á síðasta ári.
Slapp
banner
banner