ÍBV 3 - 2 Víkingur R.
0-1 Bergdís Sveinsdóttir ('21 , víti)
0-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('25 )
1-2 Avery Mae Vanderven ('50 )
2-2 Olga Sevcova ('51 )
3-2 Allison Patricia Clark ('83 )
Rautt spjald: Kristín Erla Ó Johnson, Víkingur R. ('64) Lestu um leikinn
0-1 Bergdís Sveinsdóttir ('21 , víti)
0-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('25 )
1-2 Avery Mae Vanderven ('50 )
2-2 Olga Sevcova ('51 )
3-2 Allison Patricia Clark ('83 )
Rautt spjald: Kristín Erla Ó Johnson, Víkingur R. ('64) Lestu um leikinn
Eyjakonur unnu frábæran 3-2 endurkomusigur á Víkingum í 2. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í dag.
Það má segja að þetta hafi verið leikur tveggja hálfleika. Víkingskonur voru með vindinn í bakið í fyrri hálfleiknum og skoruðu tvö mörk með fjögurra mínútna millibili um miðbik hálfleiksins.
Bergdís Sveinsdóttir kom gestunum yfir á 21. mínútu með marki úr vítaspyrnu eftir að Avery Mae Vanderven hafði brotið á Freyju Stefánsdóttur.
Fjórum mínútum síðar brunuðu víkingar í sókn. Emma Steinsen Jónsdóttir átti sendingu inn á markteig þar sem Jasmín Erla Ingadóttir var mætt og staðan 2-0 fyrir gestina.
Víkingar sköpuðu sér fleiri færi og voru sanngjarnt yfir í hálfleik, en í þeim síðari fengu Eyjakonur vindinn í bakið og voru þær ekki lengi að nýta sér það.
Vanderven minnkaði muninn á 50. mínútu. Sandra Voitane tók aukaspyrnu frá miðlínu á Avery sem tók vel á móti boltanum og setti hann í netið.
Mínútu síðar kom jöfnunarmarkið er Arden Joy La-Rose, markvörður ÍBV, sparkaði boltanum fram völlinn, Víkingskonur flikkuðu honum inn á Olgu Sevcova sem setti boltann niðri í hornið.
Hálftíma fyrir leikslok sá Kristín Erla Ó Johnson, leikmaður Víkings, sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir brot á Fridrikku Marie Clementsen.
Eyjakonur fengu urmul af færum til þess að fullkomna endurkomuna með sigurmarki og það kom fyrir rest, en það gerði Allison Patricia Clark á 83. mínútu leiksins. Viktorija Zaicikova ætlaði að þræða boltann í gegn á Allison Grace Lowrey sem náði ekki til boltans. Hann datt fyrir Clark sem reyndi skotið fyrir utan og réði Elizabeth Grace McClellan, markvörður Víkings, ekkert við skotið sem hafnaði í markinu.
Mögnuð endurkoma hjá nýliðum ÍBV sem eru með fullt hús stiga úr tveimur leikjum á meðan Víkingur er með þrjú stig.
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 2 | 2 | 0 | 0 | 4 - 0 | +4 | 6 |
| 2. ÍBV | 2 | 2 | 0 | 0 | 7 - 5 | +2 | 6 |
| 3. Grindavík/Njarðvík | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 4. Stjarnan | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 2 | +1 | 3 |
| 5. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 - 3 | -1 | 3 |
| 6. Víkingur R. | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 4 | 0 | 3 |
| 7. Þróttur R. | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 - 3 | -1 | 3 |
| 8. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 9. Þór/KA | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 10. Fram | 2 | 0 | 0 | 2 | 3 - 6 | -3 | 0 |



