Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, hefur staðfest að félagið hafi fengið inn bardagakappa í blönduðum bardagalistum (MMA) til að prófa nýja tækni í föstum leikatriðum.
Miðjumaðurinn Jack Hinshelwood sagði í viðtali við BBC á dögunum hvað hann væri hrifinn af því hvað Hürzeler væri frumlegur og greindi þar frá því að hann hafi fengið bardagakappa á æfingasvæðið.
Hürzeler staðfesti þetta á blaðamannafundinum fyrir leikinn gegn Newcastle United, en vildi þó ekki nafngreina bardagakappann.
„Við fengum hann því við höfum rætt mikið um föst leikatriðið, blokkeringar og nýja tísku í ensku úrvalsdeildinni. Við erum að reyna aðlagast því við viljum ekki vera þekktir fyrir að vera of næs.“
„Á ákveðnum augnablikum verður maður að vera harður af sér í einvígum. Það er hægt að beita líkama og hæfileikum á mismunandi vegum til þess að vinna einn á einn og sérstaklega í föstum leikatriðum. Bardagakappar í MMA eru alltaf í einn á einn og þeirra vinna er að finna leiðir til þess að sigra andstæðinginn. Við elskum að sækja hugmyndir úr öðrum íþróttum.“
„Við erum með einhverjar hugmyndir sem hafa reynst okkur hjálplegar til að nota sem lið. Við höfum aldrei verið þekktir fyrir að vera með yfirráð í föstum leikatriðum eða sækja leikmenn sem henta þeim atriðum þannig við þurfum að vera svolítið frumlegir í þessu.“
„Við viljum ekki tapa auðveldlega þegar við mætum hávaxnari liðum. Við erum kannski með þann eiginleika, en það eru alltaf til leiðir til að verjast og sækja í einn á einn einvígum. Þess vegna erum við að reyna að nýta öðruvísi tækni, eins og í MMA,“ sagði hann.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 34 | 13 | 9 | 12 | 49 | 46 | +3 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |





