Gianluigi Donnarumma, markvörður Manchester City, segir að það hjálpi sínu liði að franski framherjinn Kylian Mbappe verður ekki með í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Mbappe var ekki með á æfingu í gær og getur ekki tekið þátt í leiknum á Bernabeu í kvöld.
Mbappe var ekki með á æfingu í gær og getur ekki tekið þátt í leiknum á Bernabeu í kvöld.
Mbappe er markahæstur í Meistaradeildinni á þessu tímabili með þrettán mörk og skoraði þrennu gegn City í umspilinu fyrir ári síðan.
Donnarumma og Mbappe spiluðu saman hjá Paris Saint-Germain.
„Ég hef verið það heppinn að spila með Kylan og hann er einn magnaðasti leikmaður heims. Hann er með svakalega hæfileika og sem markvörður þá hjálpar það að þurfa ekki að mæta svona leikmanni," segir Donnarumma.
Mbappe er byrjaður að taka þátt í æfingum með liðsfélögum sínum að nýju en þessi fyrri leikur kemur aðeins of snemma fyrir hann. Meðal annarra leikmanna Real Madrid sem missa af leiknum í kvöld er Jude Bellingham.
Athugasemdir



